Karlmaður á fertugsaldri fannst látinn á göngustíg í Grafarholti snemma í morgun. Vegfarandi kom að manninum og gerði viðvart. Að sögn lögreglu eru grunnir yfirborðsáverkar á líkinu, en grunur leikur að á maðurinn hafi fallið.
Lögreglan segist ekki útiloka neitt að svo stöddu, spurð hvort andlát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti.
Málið er í rannsókn.