Óvenjulegar aðstæður komu upp hjá björgunarsveitum á Suðurlandi í gær þegar tvö útköll voru í gangi samtímis.
Óskað hafði eftir aðstoð við að ná í bíl sem erlendir ferðamenn höfðu fest við Núpafjallsenda í Fljótshverfi austan Kirkjubæjarklausturs. Til stóð að fara í þann leiðangur snemma morguns, en áður en til þess kom útkall klukkan sjö vegna leitar að pilti á tvítugsaldri.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.
Fram kemur að þegar leitinni var lokið hafi heimamenn haldið að Núpafjallsenda til að sækja bílinn. Verkefnið reyndist viðameira en talið var í fyrstu og þurfti viðbótarmannskap og tæki til að leysa það. Í bílnum hafi verið erlendir ferðamenn og þeir hafi verið komnir með bílinn utan vega og ljóst sé að töluverð landsspjöll hafi hlotist af.
Björgunarsveitarmenn frá Kyndli á Kirkjubækarklaustri og Stjörnunni í Skaftártungu komu með bílinn og ferðamennina til byggða kl. 3 í nótt og var farið með þá á lögreglustöðina á Kirkjubæjarklaustri þar sem þeir voru yfirheyrðir. Báru þeir fyrir sig að þeir hefðu ekið eftir slóða sem sem merktur var á landakorti sem þeir höfðu í fórum sínum.
Björgunarsveitamennirnir voru hvíldinni fegnir eftir þetta verkefni enda höfðu flestir þá verið að í yfir 20 klst. samfleytt.