Börn fá ókeypis í sund í Reykjavík frá og með deginum í dag og gildir það út sumarið.
Þannig geta allir sem eru yngri en 18 ára notið sundlauga Reykjavíkur sér að kostnaðarlausu.
Þetta er meðal fyrstu verka Besta flokksins í Reykjavík og má finna í samstarfsyfirlýsingu flokksins og Samfylkingarinnar.
Því er um að gera að skella sér í sund og fagna sumrinu!