Kafari lést á Þingvöllum

Maður lést við köfun á Þingvöllum í dag.
Maður lést við köfun á Þingvöllum í dag. mbl.is

Franskur kafari lést í Silfru á Þingvöllum í dag.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að lögregla, sjúkralið, sérsveitarkafarar, kafarar frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins svo og björgunarsveitir frá Árborg og Hveragerði hafi farið þegar á staðinn eftir að útkall barst.

Maðurinn var meðvitundarlaus þegar hann náðist upp úr vatninu.  Lífgunartilraunir hófust þegar í stað en báru ekki árangur og úrskurðaði læknir manninn látinn.

Maðurinn var franskur og talið er að hann hafi verið um þrítugt.

Með manninum í för var frönsk kona sem talin er vera unnusta hans að því er lögregla greinir. Konan var flutt með sjúkrabifreið á Landspítala þar sem henni verður veitt áfallahjálp. 

Ekki liggur fyrir hver aðdragandi slyssins var en málið er í rannsókn.

Lögreglan á Selfossi beinir þeim tilmælum til þeirra sem hugsanlega hafa orðið vitni að aðdraganda slyssins eða geta veitt aðrar upplýsingar sem gætu skipt máli að hafa samband í síma 480 1010 sem er sími lögreglunnar á Selfossi.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert