Héraðsdómur Vesturlands dæmdi fyrr í þessum mánuði þrítugan karlmann,
Sigurð Á. Þorvaldsson, í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun. Honum var
einnig gert að greiða fórnarlambi sínu, 17 ára stúlku, átta hundruð
þúsund krónur í miskabætur.
Sigurður sem leikur körfuknattleik með Snæfelli í Stykkishólmi auk þess að hafa leikið með landsliði Íslands í körfuknattleik var sakfelldur fyrir að hafa í samkvæmi í heimahúsi að morgni laugardagsins 7. nóvember sl. afklætt stúlkuna þar sem hún lá áfengisdauð á rúmi eftir skemmtanahald, kysst og káfað á líkama hennar og haft við hana samræði. Hann neitaði alfarið sök og sagði kynmökin með vilja beggja. Sigurður og stúlkan þekktust ekki.
Dómurinn sem var fjölskipaður segir að frásögn Sigurðar fari í bága við flest annað sem komið hafi fram í málinu. Vitni hafi þannig lýst því fyrir dómi að stúlkan hafi verið sofandi á rúminu og ekki hægt að vekja hana. Í dóminum segir að brotið hafi verið alvarlegt og valdið stúlkunni miklum og varanlegum miska. Í því sambandi er sérstaklega bent á að stúlkan búi í litlu samfélagi sem magni áhrifin.
Í dómnum, sem kveðinn var upp 9. júní sl., kemur einnig fram að Sigurður hafði fyrr um kvöldið haft samræði við aðra stúlku inni á baðherbergi sama húss. Stúlkan bar við, að það hefði verið gegn hennar vilja og samförunum hefði lokið þegar hún spurði hvort hann ætti ekki konu og börn. Sigurður kannaðist við það hjá lögreglu að hafa næstum því haft við stúlkuna samfarir eða hafið þær í stutta stund.