Litlar breytingar á gosstöðvunum

Litlar breytingar eru við gosstöðvarnar í Eyjafjallajökli. Milli 11. og 17. júní hafði hægt heldur á vatnssöfnun í gígnum frá því sem var dagana þar á undan, þar sem ísstálið virðist aftur hafa einangrast frá gígnum. Þetta kemur fram í nýrri stöðuskýrslu frá Veðurstofu Íslands og jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.

Alltaf öðru hvoru sjást öskuský stíga frá gígnum og leysast síðan upp. Landbreytingar eru enn örlitlar í átt að gígnum, nema hvað GPS mælir á Austmannsbungu hefur hreyfst til suðvesturs, en ekki er augljóst hvernig á að túlka þá hreyfingu, samkvæmt skýrslunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka