Hlaup er hafið í Skaftá og hleypur nú úr austari katlinum, þeim stærri. Samkvæmt upplýsingum frá vatnamælingamönnum Veðurstofu Íslands má búast við hlaupi allt 12-1400 m3/sek. Nokkuð var í ánni fyrir sökum leysinga og úrkomu.
Hlaupið hófst að öllum líkindum um 1:00 í nótt og ætti því áhrif þess á Skaftá að fara sjást nærri byggð seinnipart dags.
Ekki er talin hætta á ferðum en rétt er að vara við brennisteinsmengun sem helst gætir nærri upptökum hlaupvatnsins. Ferðamenn á svæðinu eru beðnir að fara gætilega.
Mun meira vatn er í þessu hlaupi en því sem kom úr vestari katlinum þann 20. júní s.l. Má búast við því að vatn fari yfir vegi við Hólaskjól og Skaftárdal.
Lögreglan á Hvolsvelli fylgist með framvindu á staðnum í samvinnu við Veðurstofuna og almannavarnadeild ríkislögreglustjórans.