Starfsmaðurinn er látinn

Sprenging varð í Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga í gærkvöld
Sprenging varð í Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga í gærkvöld mbl.is/Ómar

Maður sem slasaðist þegar sprenging varð í ofni Járnblendiverksmiðju Elkem í gær er látinn. Maðurinn, sem var reyndur starfsmaður, brenndist illa í sprengingunni og lést af sárum sínum á Landspítalanum í Fossvogi.

Rannsókn stendur yfir á tildrögum slyssins sem er það alvarlegasta sem orðið hefur í verksmiðjunni.

Í tilkynningu frá Elkem kemur fram að um kl. 19:30 í gærkvöldi hafi orðið sprenging í járnblendiverksmiðju Elkem. Eldtunga og málmslettur hafi brotist út úr einum af þremur ofnum verksmiðjunnar.

Ítarlegri viðbragðsáætlun Elkem er fylgt þegar aðstæður sem þessar skapast. Slökkt hefur verið á ofnum verksmiðjunnar og starfsemi hennar stöðvuð. Unnið er að rannsókn á tildrögum slyssins og verður upplýst nánar um málsatvik þegar frumathugun lýkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert