Maðurinn sem lést eftir að sprenging varð í ofni járnblendiverksmiðju Elkem hét Óskar Stefánsson.
Óskar var þrítugur að aldri, fæddur 3. ágúst 1979 og búsettur í Reykjavík. Hann lætur eftir sig dóttur á þrettánda ári.
Óskar hafði unnið í rúm tvö ár hjá járnblendiverksmiðju Elkem, hóf þar störf árið 2008.