Maðurinn sem veiktist um borð í skipi fyrir utan mynni Hafnarfjarðarhafnar fyrr í kvöld er látinn. Óskað var eftir aðstoð TF-GNÁ, þyrlu Landhelgisgæslunnar. Ekki er hægt að greina frá dánarorsök mannsins að svo stöddu né aldri hans eða þjóðerni.
Lögreglumenn eru um borð í skipinu en ekki fást upplýsingar um hvað það heitir eða hvers konar skip er á ferð. Þá liggur nákvæm staðsetning skipsins þegar veikindin komu upp ekki fyrir en óstaðfestar heimildir Morgunblaðsins herma að það hafi verið talsvert frá landi.