Hægt er að fylgjast með þjóðhátíðinni í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum á mbl.is gegnum vefmyndavél sem sett hefur verið upp á stóra sviðinu og sýnir brekkuna og danspallinn.
Útsendingin, sem er í samstarfi við Svar tækni og raftækjavinnustofuna Geisla í Vestmannaeyjum stendur til klukkan 2 í nótt. Brekkusöngurinn hefst klukkan 23 í kvöld en honum er einnig útvarpað á Rás 2.
Hægt er að skoða myndirnar frá vefmyndavélinni með því að smella á hnapp á forsíðu mbl.is.