Maðurinn sem fannst látinn á heimili sínu við Háaberg í Hafnarfirði í gær, hét Hannes Þór Helgason. Hann var þrjátíu og sjö ára gamall, fæddur 9. júlí 1973. Hann bjó einn. Hannesi var ráðinn bani með eggvopni.
Hannes var framkvæmdastjóri sælgætisgerðarinnar Góu.
Aðstandandi kom að Hannesi en lögreglan vinnur hörðum höndum að rannsókn málsins. Fjölmargir hafa verið yfirheyrðir en enginn handtekinn.