Rannsókn lögreglu bendir til þess að ráðist hafi verið á Hannes Þór Helgason á heimili hans en hann var einn heima aðfaranótt sunnudags. Við atlöguna var eggvopni beitt og Hannesi veitt nokkur stungusár sem drógu hann til dauða. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins þurfti morðinginn ekki að brjóta sér leið inn í húsið. Unnusta Hannesar kom að honum látnum skömmu fyrir hádegi í gær.
Í tilkynningu frá lögreglunni segir að rannsókn lögreglu á manndrápinu haldi áfram og hún sé mjög umfangsmikil.
„Rannsóknin bendir til þess að atlagan hafi átt sér stað á heimili mannsins en hann var einn heima þessa nótt. Gögn benda til þess að ráðist hafi verið að honum nokkrum klukkustundum áður en unnusta hans kom að honum látnum laust fyrir hádegi í gær. Við atlöguna var eggvopni beitt og honum veitt nokkur stungusár sem drógu hann til dauða.
Fjölmargir hafa verið yfirheyrðir vegna rannsóknarinnar en enginn er í haldi lögreglu vegna þess. Lögreglan biður þá sem upplýsingar geta gefið í tengslum við rannsókn málsins um að hafa samband í 444-1104," segir í tilkynningu frá lögreglu.