Tveir hálsbrotnuðu

Karlmaður og kona hálsbrotnuðu með dags millibili í Skaftárhreppi nú í ágúst. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli fór betur en á horfðist í bæði skiptin og fólkið er ekki talið hafa borið varanlegan skaða af.

Bíll valt sunnan við bæinn Gröf og lenti í gili.  Ökumaður bifreiðarinnar tvíhálsbrotnaði, að sögn lögreglunnar og var fluttur til Reykjavíkur þar sem hann gekkst undir aðgerð. Lögreglan segir, að  maðurinn muni ekki hafa lamast við þetta óhapp.

Daginn eftir féll erlend kona, sem hér var á ferð, fram fyrir sig inni í helli austan við Miklafell.  Hún hálsbrotnaði einnig á tveimur stöðum.  Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti konuna og gekkst hún undir aðgerð og slapp án varanlegs skaða að því er talið er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert