Stjórn BSRB kallar eftir því að einkavæðing bankanna verði rannsökuð. Rannsóknarnefnd Alþingis komst að því í skýrslu sinni að víða hefði pottur verið brotinn hvað hana varðar og hinu sama má finna stað í skýrslu þingmannanefndar. Þetta kemur fram í ályktun frá stjórninni.
„Hrunið, aðdragandi þess og afleiðingar, verður ekki að fullu gert upp fyrr en það ferli hefur verið kannað í þaula. Þar skipta lög um fyrningu ekki öllu; rannsóknin ein og sér mun stuðla að frekari sátt í samfélaginu. Það að horfast í augu við mistök fortíðarinnar gerir okkur betur kleift að skapa réttlátt samfélag til framtíðar.
BSRB hvetur því Alþingi Íslendinga til að samþykkja óháða rannsókn á einkavæðingu bankanna," segir á vef BSRB.