Íslenskur starfsmaður Ístaks lést í vinnuslysi á Grænlandi í gærkvöldi. Ístak er að byggja virkjun í Pakitsog sem er um 60 km frá bænum Ilulissat á vesturstönd Grænlands. Maðurinn missti stjórn á fjórhjóli og varð undir því.
Maðurinn ók fjórhjólinu upp á fjall ofan við lónið. Hann missti stjórn á hjólinu með þeim afleiðingum að hann féll af því og lenti það ofan á honum. Kallað var á björgunarþyrlu, en maðurinn var látinn þegar hún lenti á slysstað. Erfiðar aðstæður voru á staðnum og þurftu björgunarmenn að ganga langa leið á slysstað.
Rannsókn á slysinu er ekki lokið. Ekki er hægt að birta nafn mannsins að svo stöddu.
Um 120 manns eru á vegum Ístaks í Grænlandi, flestir Íslendingar. Ístak sér um hönnun og bygging virkjunarinnar og háspennulínu til bæjarins Ilulissat. Áætluð verklok eru í árslok 2013.