Opnunartími verslana í Kringlunni verður lengdur til miðnættis á fimmtudag, 30. september. Að sögn Sigurjóns Arnar Þórssonar, framkvæmdastjóra Kringlunnar, var áhugi á því að lengja opnunartímann kannaður meðal verslunareigenda og tóku flestir vel í hugmyndina.
Venjulega eru verslanir í Kringlunni opnar til klukkan 21 á fimmtudögum og segir Sigurjón að ekki verði breyting þar á. Einungis sé um einstakt tilvik að ræða og svipað því sem algengt er í útlöndum.