Andrés Tómasson, maðurinn sem saknað hefur verið frá því 24. september, fannst látinn í bifreið sinni í Kleifarvatni nú í kvöld.
Tilkynning barst lögreglu í dag um bílflak í vatninu sem reyndist vera bíll Andrésar. Voru kafarar kallaðir til og var bíllinn hífður upp úr vatninu nú í kvöld.