„Ég sofnaði vel eftir þetta“

Bjarni Valtýsson að störfum í Sundhöll Reykjavíkur.
Bjarni Valtýsson að störfum í Sundhöll Reykjavíkur.

„Ég sofnaði vel eftir þetta,“ segir Bjarni Valtýsson sundlaugarvörður í Sundhöll Reykjavíkur sem bjargaði lífi ungs manns í lauginni i gærkvöldi, og naut við það aðstoðar tveggja sundlaugargesta.

Bjarni segir að ungur maður hafi stungið sér af brettinu. Hann hafi verið áfram undir brettinu og ekki verið að flýta sér frá. Það væri ekki óalgengt. Hann hafi verið farinn að huga að því að ýta við honum af því að tveir menn biðu eftir því að geta stungið sér þegar maðurinn lagðist flatur á botninn.

Bjarni segist hafa beðið mennina um að kippa manninum uppúr á meðan hann setti öryggiskerfið í gang. Þeir hafi síðan hjálpast að við að koma honum upp á bakkann og hann byrjað strax að hnoða.

Maðurinn var orðinn blár og meðvitundarlaus, að sögn Bjarna, og hafði fengið vatn ofan í sig.

„Það tók tuttugu hnoð og þá fór hann að hósta og æla. Þá sáum við að hann var að lifna við. Ég setti svo súrefnistækið á hann til að hjálpa honum að anda,“ segir Bjarni. Læknir sem var að koma í sund fylgdist með og sagði að þetta væri í lagi.

Maðurinn var fluttur á Landspítalann og starfsmenn Sundhallarinnar fengu þær upplýsingar í gærkvöldi að hann yrði þar um nóttina. Bjarni vissi ekki annað en að það væri í lagi með hann.

Í ljós kom að ungi maðurinn var flogaveikur en það vissu starfsmenn Sundhallarinnar ekki um.

Bjarni segir að björgunin hafi verið eins og á æfingu. „Ég gerði eins og mér hefur verið kennt. Við erum nýbúin að rifja þetta upp,“ segir hann og leggur um leið áherslu á þátt sundlaugargestanna sem hjálpuðu honum við björgunina, þeir hafi verið fljótir að ná manninum upp úr lauginni.

„Manni líður vel með þetta. Ég hefði alveg eins getað verið í hinum enda laugarinnar þegar þetta gerðist,“ segir Bjarni.

Hann hefur áður bjargað manni. Þá þurfti hann að sækja útlending sem lenti í vandræðum í lauginni. „Sá jafnaði sig fljótt á bakkanum,“ segir Bjarni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert