Ung hjón létust í Tyrklandi

mbl.is

Tveir íslenskir ríkisborgarar, ung hjón, létust í umferðarslysi í suðvesturhluta  Tyrklands, í grennd við borgina Mugla, í morgun. Upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytis staðfestir þetta og segir aðstandendur fólksins hafa verið upplýsta um slysið. Ungt barn sem var meðferðis í bílnum slapp óslasað.

Hjónin voru á ferðalagi um Tyrkland. Ekki er unnt að greina frá nöfnum þeirra að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert