Varð fyrir lest og lést

Íslenskur maður lést þegar hann varð fyrir lest við Drammen í Noregi seint í gærkvöldi.

Maðurinn var að koma úr veislu og var á leiðinni heim. Af óljósum ástæðum var hann staddur á lestarteinunum þegar lestin var á leið á endastöð. Engir farþegar voru um borð þegar slysið varð. Lögregla hefur ekki lokið rannsókn á slysinu.

Að því er fram kemur í norskum vefmiðlum var maðurinn 23 ára gamall og búsettur í Noregi. Slysið varð á  Brakerøya lestarstöðinni klukkan 00:30 að norskum tíma.  Maðurinn varð fyrir flugvallarlestinni, sem fór fram hjá stöðinni á miklum hraða en verið var að flytja hana frá Drammen til Ósló, engir farþegar voru um borð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert