Rjúpnaskytta fannst látin á heiðinni milli Gufudals og Djúpadals í Austur-Barðastrandarsýslu síðastliðið föstudagskvöld, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði.
Maðurinn, sem var á sextugsaldri, varð viðskila við félaga sína, sem hófu þegar í stað leit að honum þegar þeim tókst ekki að ná sambandi við hann. Björgunarsveitin í Reykhólasveit var kölluð út, en maðurinn fannst áður en björgunarsveitarmenn bar að.