Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, vill efla tengsl Íslands og Írans. Þetta kom fram á fundi forsetans með Seyed Hossein Rezvani, sendiherra Írans á Íslandi með aðsetur í Ósló, á Bessastöðum fyrir skömmu. Sagði forsetinn Íran gegna mikilvægu hlutverki í Miðausturlöndum og heiminum öllum.
Forseti Íslands kallar eftir nánari samvinnu ríkjanna en fram kemur á vef fréttastofunnar Fars News Agency að Ólafur Ragnar og Rezvani hafi lýst yfir „ánægju með vaxandi samskipti á milli Írans og Íslands“.
Fyrirsögn greinarinnar er: „Forseti Íslands undirstrikar merkilega stöðu Írans í heiminum“.
Íslendingar vilja miðla þekkingu til Írana
„[Ólafur Ragnar] Grímsson kallaði eftir samvinnu [stjórnvalda í] Teheran í sjávarútvegi og á sviði jarðhita og lýsti yfir vilja landsins til að miðla þekkingu og reynslu á þessum tveimur sviðum til Írans,“ segir á vef fréttaveitunnar í lauslegri þýðingu úr ensku yfir á íslensku.
„Hann undirstrikaði þörfina fyrir að auka gagnkvæmar heimsóknir fulltrúa beggja landa í stjórnmálum, efnahagsmálum og á sviði menningarmála, og óskaði eftir frekari aðstöðu og undirbúningi fyrir samvinnu hins opinbera og einkageirans í Íran og á Íslandi.
Rezvani átti einnig sérstakan fund með Össuri Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra Íslands, og ræddi nýjustu þróun mála í tvíhliða samskiptum auk annarra málefna sem vekja gagnkvæman áhuga,“ segir á vef fréttaveitunnar.
Yfirlýsingar forsetans vekja athygli, ekki síst í ljósi þess að viðskiptabann er á írönsku klerkastjórnarinnar vegna kjarnorkuáætlunar landsins. Þá er stjórn Mahmouds Ahmadinejads Íransforseta yfirlýstur óvinur Ísraelsríkis.
Afhenti trúnaðarbréf
Nálgast má umfjöllun forsetaembættisins um fundinn hér.
Orðrétt segir á vef forsetaembættisins:
„Forseti á fund með nýjum sendiherra Írans hr. Seyed Hossein Rezvani sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastööðum. Rætt var um áhuga á samstarfi á sviði jarðhita og sjávarútvegs, aðgang ungs menntafólks að Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna og Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna sem starfræktir eru á Íslandi. Þá var einnig rætt um þróun mála í Miðausturlöndum, og samskipti Írans við nágrannalönd.“