Veiktist snögglega - þarf nýtt hjarta

Helga Sigríður Sigurðardóttir.
Helga Sigríður Sigurðardóttir.

Tólf ára stúlka á Akureyri, Helga Sigríður Sigurðardóttir, sem veiktist alvarlega á miðvikudaginn og hefur barist fyrir lífi sínu á Landspítalanum síðan, verður flutt til Svíþjóðar í dag þar sem þarf að græða í hana nýtt hjarta. Fjársöfnun er hafin til styrktar fjölskyldu Helgu Sigríðar. 

Í færslu á Facebook fjallar Hans Rúnar Snorrason, kennari við Hrafnagilsskóla um málið, en Helga Sigríður er besta vinkona dóttur hans. Hans Rúnar hratt fjársöfnuninni af stað.

Hans Rúnar segir m.a. á Facebook:

„Helga Sigríður Sigurðardóttir er 12 ára orkumikill og jákvæður sólargeisi. Þessi stúlka, sem fór í skólann eldhress sl. miðvikudag, missti meðvitund í búningsklefanum í sundtíma og er nú á gjörgæsludeild Landspítalans í hjarta og lungnavél þar sem hún berst nú fyrir lífi sínu. Hjartað hennar hefur orðið fyrir miklum skaða og mun hún þurfa nýtt hjarta eins fljótt og auðið er.“

Fram kemur að Helga Sigríður verði líklega tengd við gervihjarta þegar komið verður til Gautaborgar, meðan beðið er eftir að hún fái nýtt.

„Helga er afar góð stúlka sem hefur mikla útgeislun. Hún er jákvæð, skemmtileg og í kringum hana er ávallt fjör og gleði. Hún er mikil íþróttastelpa og hefur stundað fimleika árum saman.

Eins og gefur að skilja þá verður fjölskylda hennar lengi frá vinnu með tilheyrandi tekjumissi. Þess vegna viljum við sýna hug okkar í verki og koma af stað söfnun. Það síðasta sem fjölskyldan þarf er að hafa áhyggjur af fjármálum. Það skiptir engu máli hve lítið þið gefið , margt smátt gerir eitt stórt.

Sýnum þessari góðu fjölskyldu að hún búi á Íslandi þar sem ríkir samkennd og samhugur, þar sem hjálpast er að á erfiðum tímum.“

Reikningur Maríu Egilsdóttur, móður Helgu er 0565-26-110378, Kennitala 180470-3449

Djúpt snortin

María Egilsdóttir, móðir Helgu Sigríðar, tjáir sig um málið Facebook í morgun: „Við fjölskyldan erum djúpt snortin yfir þessum miklu og góðu viðbrögðum frá ótrúlegasta fólki. Kvöldið var erfitt, hjartað að stríða en auðvitað náði hún að snúa við áður en rokið var með hana aftur í hjartaþræðingu og nóttin stöðug eftir það. Nú bíðum við eftir vélinni frá Gautaborg,“ segir María.

Helga Sigríður fer með flugvél sem kemur frá Svíþjóð. Þar er í raun um að ræða fljúgandi gjörgæsludeild en, María og eiginmaður hennar, Sigurður Bjarnason, fara með áætlunarflugi til Gautaborgar í gegnum Kaupmannahöfn síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert