Almannavarnastig hefur verið lækkað frá neyðarstigi niður á óvissustig vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Segir að vegna þekktrar sögu eldfjallsins um löng hlé á umbrotum hafi ekki verið talið óhætt að aflétta viðbúnaði strax.
Þá segir að óvissustig sé lægsta almannavarnastigið og með því að hafa það í gildi sé verið að tryggja að áfram verði vöktun og eftirlit með þeim þáttum sem snúi að framvindu í eldfjallinu, sem og þeim atriðum sem snúi að afleiðingum gossins svo sem aurflóðum og öskufoki, sem enn eigi sér stað.
Tilkynning almannavarndardeildarinnar er eftirfarandi:
„Eldgosið í Eyjafjallajökli hófst 14. apríl s.l. og voru síðustu merki um eldgos í byrjun júní. Vegna þekktrar sögu eldfjallsins um löng hlé á umbrotum var ekki talið óhætt að aflétta viðbúnaði strax.
Frá því snemma í sumar hefur þó smám saman verið dregið úr viðbúnaði þó að mörg verkefni hafi verið unnin áfram. Má þar nefna aukna vöktun, viðbrögð vegna aurflóða og mat á tjóni.
Í ljósi þess að langur tími er nú liðinn án gosvirkni og vísindamenn fullyrði að nýr atburður í jöklinum hefði greinilegan fyrirvara, hefur verið ákveðið að lækka almannavarnastig frá neyðarstigi niður á óvissustig.
Óvissustig er lægsta almannavarnastigið og með því að hafa það í gildi er verið að tryggja að áfram verið vöktun og eftirlit með þeim þáttum sem snúa að framvindu í eldfjallinu sem og þeim atriðum sem snúa að afleiðingum gossins svo sem aurflóðum og öskufoki, sem enn eiga sér stað.
Á sama tíma eru felldar úr gildi þær takmarkanir sem gilt hafa um umferð gangandi fólks sem og vélknúinna ökutækja á Eyjafjallajökli. Þrátt fyrir þetta er bent á, að jökullin er mjög hættulegur yfirferðar, þar sem hann er mjög sprunginn og þakinn mikilli ösku. Enn er hætta við eldstöðvarnar bæði á Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi vegna eitraðra gastegunda, sem streyma frá þeim. Einnig sýna mælingar að ennþá er gríðarlegur hiti í hrauninu og næst eldstöðinni á Fimmvörðuhálsi hefur nýlega mælst 800 gráðu hiti á 10 sm dýpi.
Þessi ákvörðun á ekki að hafa áhrif á þau mál sem nú eru í vinnslu og snúa að tjónabótum og öðrum málum tengdum afleiðingum eldgossins.“