Kraftur í kjaraviðræðurnar

Forseti ASÍ á von á að viðræður ASÍ og SA …
Forseti ASÍ á von á að viðræður ASÍ og SA fari aftur af stað af alvöru eftir helgina. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, væntir þess að kjaraviðræður við Samtök atvinnulífsins hefjist af krafti eftir helgina. Miðað er við gerð samnings til þriggja ára. Þetta kemur fram í frétt frá ASÍ.

Frétt ASÍ er svohljóðandi:

„Samninganefndir ASÍ og SA hafa í gær og í dag rætt mögulega tímalengd og uppbyggingu væntanlegs kjarasamnings. Aðilar hafa orðið sammála um að setja kraft í kjaraviðræður sem miðast við gerð samnings til 3 ára.  Reyna á að ljúka þeirri vinnu eins hratt og mögulegt er.

Hugmynd aðila er að efni slíks kjarasamnings myndi öðlast gildi í júní að því gefnu að aðilar vinnumarkaðarins nái samkomulagi við ríkisstjórn og Alþingi um tilteknar aðgerðir. Takist ekki að sameinast um grundvöll slíks samnings myndi hann breytast í skammtímasamning.

Í þessum hugmyndum er gert ráð fyrir að til launabreytinga komi strax við undirritun en að samningurinn öðlist ekki fullt gildi fyrr en í júní. Í viðtali við forseta ASÍ kom fram að hann teldi afar mikilvægt að tekist hefði að rjúfa þá kyrrstöðu sem samningaviðræður voru komnar í og væntir hann þess að þær fari af stað fyrir alvöru á ný eftir helgi."


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert