Landvernd harmar ákvörðun Orkustofnunar

Grændalur Milli Hveragerðis og Ölkelduháls.
Grændalur Milli Hveragerðis og Ölkelduháls. mbl.is/RAX

Stjórn Landverndar segist harma ákvörðun Orkustofnunar um að veita leyfi til borana í Grændal í Ölfusi í tengslum við jarðhitarannsóknir. Grændalur sé svæði með verndargildi á heimsvísu að mati Náttúrufræðistofnunar Íslands sem verðskuldar hámarks vernd.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landvernd.

Stjórn Landverndar undrast jafnframt að stjórnvöld, undir forystu Orkustofnunar, séu reiðubúin til að fórna slíku svæði fyrir fyrirhugaða 10 MW virkjun í mynni Grændals, þvert á afstöðu sveitarfélagsins Ölfuss, Umhverfisstofnunar, Skipulagsstofnunar og umhverfisráðuneytisins.

Náttúruverndarsamtök funda

Boðað verður til fundar náttúruverndarsamtaka til að ræða hvaða áhrif umrædd niðurstaða Orkustofnunar, sem túlka verður sem stefnubreytingu af hálfu stjórnvalda, kann að hafa á þátttöku þeirra í starfi Rammaáætlunar.

Það er mat stjórnar Landverndar að stjórnvöld verði að grípa strax til ráðstafana til að tryggja að náttúru Grændals verði ekki raskað í kjölfar ákvörðunar Orkustofnunar.

Í tilkynningunni bendir stjórn Landverndar enn fremur á að ákvörðun Orkustofnunar sýni vel fram á það stefnuleysi sem er ríkjandi í orkuiðnaði hér á landi, þar sem skipulags- og leyfisveitingavaldi hefur á undanförnum árum verið dreift á stofnanir og sveitarfélög.

„Við treystum því að núverandi stjórnvöld breyti lögum og reglugerðum til að sitja ekki undir ámæli um að forðast pólitíska ábyrgð ríkisstjórnar og Alþingis á skipulags-, stóriðju- og virkjanamálum. Ótækt er að einni stofnun sé kleift að veita leyfi til að raska svæði sem náttúruverndarsamtök, ríkisstjórn, fagstofnanir á sviði umhverfismála og sveitarfélög eru sammála um að vernda.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka