Nefnd skipuð til að fara yfir mál OR

Orkuveita Reykjavíkur
Orkuveita Reykjavíkur mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Borgarráð hefur samþykkt að skipa þrjá einstaklinga í úttektarnefnd sem mun fara yfir málefni Orkuveitu Reykjavíkur. Er nefndinni ætlað að gera óháða úttekt á þeim þáttum sem leiddu til núverandi fjárhagsstöðu fyrirtækisins.

Úttektarnefndinni er ætlað að skoða rekstur Orkuveitu Reykjavíkur allt frá stofnun fyrirtækisins. Mun úttekt nefndarinnar beinast sérstaklega að því að skoða hvernig staðið var að mikilvægum skuldbindandi ákvörðunum, þar á meðal aðkomu eigenda, stjórnar og stjórnenda að þessum ákvörðunum. Úttektin mun ennfremur beinast að vinnubrögðum stjórnar, forstjóra og framkvæmdastjórnar og samvinnu þeirra á milli. Þá verða ýmsir þættir innra eftirlits fyrirtækisins metnir og áhættustýring þess skoðuð. Kemur þetta fram í erindisbréfi úttektarnefndarinnar.

Markmiðið er að skýra aðdraganda og orsakir fyrir þeirri stöðu sem rekstur Orkuveitu Reykjavíkur er í með það að leiðarljósi að bæta stjórnsýslu hjá fyrirtækinu og samskipti milli eigenda og fyrirtækisins.

Mun úttektarnefndin gera grein fyrir niðurstöðum sínum í skýrslu til eigenda Orkuveitu Reykjavíkur sem áætlað er að verði tilbúin fyrir 1. mars 2012.

Eftirfarandi þrír einstaklingar skipa úttektarnefndina:

Margrét Pétursdóttir en Margrét verður formaður nefndarinnar. Hún er löggiltur endurskoðandi og starfar hjá Ernst & Young.  Ása Ólafsdóttir lögfræðingur og lektor við lagadeild Háskóla Íslands. Ómar Hlynur Kristmundsson, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.

Margrét Pétursdóttir
Margrét Pétursdóttir
Ása Ólafsdóttir
Ása Ólafsdóttir
Ómar Hlynur Kristmundsson
Ómar Hlynur Kristmundsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert