„Við flugum þarna yfir Mýrdalsjökul og það er fyllsta ástæða til að fylgjast vel með þessu, það eru breytingar á svæðinu dag frá degi,“ segir Helgi Björnsson, jarðeðlisfræðingur.
Flogið var þyrlu í kvöld yfir svæðið þar sem jarðskjálfti upp á 3,8 stig varð í nótt. Helgi segir að ekki sjáist merki um umbrot þar. Hins vegar hafi orðið töluverðar breytingar á jöklinum á þeirri rúmu viku sem liðin er frá hlaupinu í Múlakvísl.
„Sigkatlarnir hafa orðið dýpri og sprungnari en þeir voru, þeir sem voru með mér í fluginu eru sammála um það.“