Lýst eftir 14 ára pilti

Ísak Ernir Arnarsson
Ísak Ernir Arnarsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ísaki Erni Arnarssyni, 14 ára. Talið er að hann sé klæddur í gráar buxur, svarta Adidas-peysu og í svörtum íþróttaskóm. Ísak er 172 sm á hæð, með blá augu og stutt, skollitað hár og hanakamb. Þá mun hann vera með teiknuð húðflúr á sér víða.

Síðast er vitað um ferðir Ísaks í Miðtúni í Reykjavík að kvöldi 11. ágúst. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert