Alþingi samþykkti í dag, með 42 samhljóða atkvæðum, lagafrumvarp sem heimilar Íbúðalánasjóði að bjóða óverðtryggð lán.
Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, sagði að frumvarpið væri engin töfralausn heldur eitt skref af mörgun í nauðsynlegum umbótum á íbúðalánamarkaði.
Í nýju lögunum er einnig heimild til sjóðsins til að bjóða íbúðarhúsnæði sem hann hefur leyst til sín, til leigu með kauprétti.