Dýrbíts leitað við Hellu

Dýrbíts hefur verið leitað á Rangárvöllum að undanförnu
Dýrbíts hefur verið leitað á Rangárvöllum að undanförnu mbl.is

Leitað hefur verið að dýrbít í nágrenni Hvolsvallar en nokkur tilvik hafa komið upp þar sem ráðist hefur verið á búfé.  Nokkrar ábendingar hafa komið en umræddur hundur hafði ekki fundist. 

Á sunnudagskvöldið var hundur handsamaður.  Hundurinn mun hafa bitið þann sem handsamaði hann í kálfann. 

Í vikunni veittist annar hundur að fé við sveitabæ í nágrenni Hellu og sást til hundsins sem reyndist vera gestkomandi í sveitinni og hafði nýlega komið.  Málið er í skoðun hjá lögreglunni og Rangárþingi ytra. 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert