Niðurstaða landsdóms áfangasigur

Geir H. Haarde ásamt lögmanni sínum þegar málflutningur var um …
Geir H. Haarde ásamt lögmanni sínum þegar málflutningur var um frávísunarkröfuna. mbl.is/Golli

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, segist líta á það sem áfangasigur, að landsdómur hafi vísað frá tveimur ákæruliðum í máli Alþingis gegn honum. 

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Geir, sem er eftirfarandi:

„Landsdómur hefur úrskurðað að máli Alþingis gegn mér skuli vísað frá að hluta.  Ég lít á það sem áfangasigur því um er að ræða tvo veigamestu ákæruliðina og jafnframt þyngstu sakargiftirnar.  

Ég og lögmaður minn höfðum á hinn bóginn talið tilefni til að vísa málinu frá í heild og að því leyti veldur niðurstaðan vonbrigðum.

Það var að mínum dómi nauðsynlegt að kalla fram með frávísunarkröfu ákvörðun dómsins um það hvort málsmeðferð í þesu máli hafi uppfyllt skilyrði laga.  Það var nauðsynlegt m.t.t. þess hvernig staðið verður að meðferð mála sem þessara í framtíðinni.

Nú blasir við að málið fer til efnismeðferðar sem hefst væntanlega eftir áramót.  Eftir standa fjórir ákæruliðir og er ég þess albúinn að sýna fram á sakleysi mitt hvað þá varðar við meðferð málsins. Ég verð þá loks yfirheyrður fyrir dómi ásamt tugum annarra einstaklinga sem málinu tengjast. Vonandi gengur þá greiðlega að leiða hið sanna í ljós í málinu. Ég ber sem fyrr fullt traust til réttarkerfisins í landinu."
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert