Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, segir á Facebook-síðu sinni að Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri Besta flokksins, fái oft skringileg viðbrögð í fjölmiðlum og umræðu.
„Er það ekki mikið gleðiefni að ung kona hafi áhuga á stjórnmálum? Ég heyri oft talað um „reynsluleysi“ og „nýgræðingur í pólitík“ en ekkert um það að hún er með BA-gráðu í stjórnmálafræði og hefur tekið þátt í að stofna stjórnmálaafl sem vakið hefur heimsathygli. Mundi Heiða fá öðruvísi viðtökur ef hún héti Heiðar,“ spyr borgarstjóri.