Andlát: Leó M. Jónsson

Leó M. Jónsson
Leó M. Jónsson mbl.is

Leó M. Jónsson, iðnaðar- og véltæknifræðingur, varð bráðkvaddur á heimili sínu í Höfnum 19. desember sl., 69 ára að aldri. Leó fæddist í Reykjavík 7. mars árið 1942, sonur Jóns Halldórs Leós og Svanlaugar Böðvarsdóttur.

Hann ólst upp í Reykjavík og gekk þar í skóla, lauk prófum frá Bankamannaskóla Íslands 1962, Vélskóla Íslands 1964, Bergens Tekniske Skole 1966, lauk tæknifræðiprófi frá Stockholms Tekniska Institut 1969 og fleiri prófgráðum það ár í Svíþjóð.

Á fyrstu árum starfsævinnar stundaði Leó ýmis störf, m.a. við dísilvélaviðgerðir og stillingar hjá Dísil, vann í Landsbankanum 1963-66 og hjá Íslenska álfélaginu 1969-71. Starfaði einnig hjá Kaupmannasamtökunum, Plastprenti og var deildarverkfræðingur hjá Iðnþróunarstofnun, síðar Iðntæknistofnun, frá 1976-79. Leó stundaði einnig ýmis ráðgjafarstörf á sviði upplýsingatækni og kenndi iðn- og véltækni við Vélskóla Íslands, Iðnskólann í Reykjavík og hjá Stjórnunarfélagi Íslands. Hluti af námi hans fór fram í þjónustuskóla General Motors í Bandaríkjunum. Frá árinu 1974 ritaði Leó greinar í dagblöð og tímarit um ýmis efni, aðallega upplýsingatækni og bíltæknimál. Leó ritstýrði Bílnum um árabil á 9. áratugnum, en blaðið var þá eina íslenska bílablaðið.

Seinni árin hélt hann úti fróðlegri vefsíðu um bílamál, leoemm.com. Eftir Leó liggja vel á þriðja hundrað pistlar í bílablaði Morgunblaðsins, sem síðustu árin hefur verið hluti af aukablaðinu Finnur.is. Að leiðarlokum þakkar Morgunblaðið samfylgdina og færir aðstandendum Leós innilegar samúðarkveðjur.

Eftirlifandi eiginkona er Sigrún D. Jónsdóttir og eignuðust þau Leó þrjú börn; Jón Orra, Björgu og Eyjólf Leós. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 29. desember kl. 13.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert