Starfshópur, sem Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skipaði í september um verndun og endurreisn svartfuglastofna, leggur m.a. til að fimm tegundir sjófugla af svartfuglaætt verði friðaðar fyrir öllum veiðum og nýtingu næstu fimm árin.
Þetta kemur fram í skýrslu sem hópurinn hefur skilað af sér og umhverfisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun.
Starfshópurinn fjallaði um fimm tegundir sjófugla af ætt svartfugla, þ.e. álku, langvíu, stuttnefju, lunda og teistu. Í skýrslu sinni leggur starfshópurinn áherslu á að hér við land sé einn stofn af hverri þessara tegunda þannig að staðbundin áhrif og breytingar hafa áhrif um allt land og á viðkomandi stofn hér við land.
Mælingar sýna að árleg fækkun álku er um 20%, fækkun langvíu um 7% á ári og stuttnefju um 24%. Viðvarandi viðkomubrestur hefur verið hjá um 75% af lundastofninum í nokkur ár og algjört hrun var í varpi hans árið 2011 nema á Norðurlandi hjá um 20% af stofninum, þar sem varp var viðunandi.
Starfshópurinn telur helstu orsakir hnignunar stofnanna vera fæðuskort en telur að tímabundið bann við veiðum og nýtingu muni flýta fyrir endurreisn þeirra.
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun, að umhverfisráðherra undirbúi frumvarp til breytinga á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum á þann veg að ráðherra verði framvegis heimilt að setja í reglugerð ákvæði um stjórnun hlunnindanýtingar. Slík lagabreyting er talin nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að friða umræddar sjófuglategundir fyrir veiðum með það að markmiði að endurreisa viðkomandi stofna og treysta sjálfbæra nýtingu þeirra.
Í starfshópnum sátu m.a. fulltrúar umhverfisráðuneytisins, Náttúrufræðistofnunar, Umhverfisstofnunar, Bændasamtaka Íslands, Skotveiðifélags Íslands og Fuglaverndar. Skotvís og Umhverfisstofnun skiluðu séráliti um friðun álku, langvíu og stuttnefju um takmörkun á veiði þeirra næstu fimm árin í stað algjörrar friðunar. Fulltrúi Bændasamtaka Íslands sagði sig frá tillögum starfshópsins eftir að tillögurnar voru frágengnar í hópnum og stendur því ekki að þeim.