Enn er ekki búið að gera við bilun sem kom upp í vélbúnaði varðskipsins Þórs. Landhelgisgæslan segir að fulltrúum frá Rolls Royce í Noregi, sem framleiddi vélina, hafi ekki tekist að komast að því hvað veldur biluninni. Mögulega þarf Þór að sigla til Noregs til frekari rannsókna og lagfæringa.
Fram kemur á vef Gæslunnar að líklega muni Rolls Royce láta sigla skipinu til Björgvinjar í Noregi til frekari rannsókna og lagfæringa. „Ef af verður er þetta allnokkur framkvæmd sem mun væntanlega taka einhverjar vikur,“ segir á vef Landhelgisgæslunnar.
Í desember sl. fóru fram fram titringsmælingar á vélum Þórs vegna ábyrgðar á vélbúnaði skipsins. Segir á vef Gæslunnar að þá hafi komið í ljós óeðlilega mikill titringur á annarri aðalvél varðskipsins. Í kjölfarið hafi Rolls Royce í Noregi sent fulltrúa sína til Íslands til að kanna hver orsökin gæti verið. Gæslan segir að mikil áhersla sé lögð á að nýta ábyrgðartíma vélanna sem er 18 mánuðir.
„Fulltrúar Rolls Royce töldu líklegt að um galla í eldsneytiskerfi væri að ræða og hafin var leit að mögulegum orsökum þess og margvíslegar breytingar gerðar á eldsneytiskerfi samfara því. Gerðar voru nýjar mælingar í kjölfarið sem leiddu í ljós að litlar sem engar breytingar höfðu orðið á titringi við þessa aðgerð. Í framhaldinu ákvað vélarframleiðandinn að stilla vélina upp á nýtt, skipta um mótorpúða og steypa undir vélina. Nú hefur komið í ljós að sú aðgerð hefur ekki borið tilætlaðan árangur þar sem titringur er enn allnokkuð yfir þeim mörkum sem framleiðandinn sjálfur, Rolls Royce, setur.
Þessar niðurstöður eru nú til skoðunar hjá Rolls Royce en þeir munu ákveða framhaldið. Líklegt má telja að Rolls Royce muni láta sigla skipinu til Bergen í Noregi þar sem vélarnar eru framleiddar, til frekari rannsókna og lagfæringa. Ef af verður er þetta allnokkur framkvæmd sem mun væntanlega taka einhverjar vikur,“ segir Gæslan.
Tekið er fram að vinnan sé alfarið á ábyrgð framleiðanda vélanna. Landhelgisgæslan muni ekki bera neinn kostnað af framkvæmdunum enda skipið í ábyrgð. Þess megi geta að ábyrgðartími véla og skips lengist sem nemur framkvæmdatíma vegna þessa.
Þá segir að það sé óheppilegt að missa skipið úr rekstri.
„Þó vitað hafi verið að ýmsar lagfæringar þyrfti að gera á skipinu meðan á ábyrgðartíma stendur var samt sem áður áætlað að skipið gæti nýst að mestu í þjónustu fyrir Landhelgisgæsluna og hennar störf nú í vetur. Landhelgisgæslan hefur gert ráðstafanir til að varðskipin Ægir og Týr verði til skiptis við gæslustörf hér við land meðan á þessum framkvæmdum stendur,“ segir ennfremur.