Lögreglan rannsakar mannslát

Atburðurinn átti sér stað í þessu húsi við Skúlaskeið í …
Atburðurinn átti sér stað í þessu húsi við Skúlaskeið í Hafnarfirði. mbl.is

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar mannslát sem átti sér stað í Hafnarfirði. Samkvæmt heimildum mbl.is hefur einn maður verið handtekinn í tengslum við málið.

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, vildi ekki staðfesta þetta í samtali við mbl.is en boðaði fréttatilkynningu síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert