Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir karlmanni sem er grunaður um að hafa orðið konu að bana í Hafnarfirði. Héraðsdómur Reykjaness mun úrskurða í málinu. Samkvæmt upplýsingum mbl.is verður farið fram á að maðurinn sæti fjögurra vikna varðhaldi.
Greint var frá því í gær að karl á þrítugsaldri hefði verið handtekinn grunaður um manndráp. Maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, kom sjálfur á lögreglustöð í gærmorgun og greindi frá atviki sem hefði átt sér stað á heimili hans í Hafnarfirði.
Fram kom í tilkynningu frá lögreglunni að framburður hans hefði verið um margt óljós en strax hefði verið haldið heim til mannsins og þar fannst kona á fertugsaldri. Hún var látin þegar að var komið en á henni voru sjáanlegir áverkar.
Konan var gestkomandi á heimili mannsins en þau höfðu þekkst um hríð. Lagt var hald á eggvopn í þágu rannsóknarinnar. Maðurinn sem nú er í haldi hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.