Karlmaður á áttræðisaldri liggur alvarlega slasaður á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir líkamsárás á Þórshöfn í nótt. Árásarmaðurinn, sem er tuttugu og þriggja ára gamall karlmaður, hefur verið handtekinn.
Á vef RÚV segir að ungi maðurinn hafi brotist inn til mannsins laust upp úr miðnætti og ráðist á húsráðanda. Þar segir líka að gamli maðurinn búi einn.
Aðkoman mun hafa verið slæm og rannsókn málsins er að mestu lokið.
Maðurinn sem handtekinn var hefur áður komist í kast við lögin.