Mótmæla með hópbrjóstagjöf

mbl.is/Brynjar Gauti

Hópur mæðra hyggst efna til hópbrjóstagjafar á veitingastaðnum Kaffi París á fimmtudag klukkan 14, til að mótmæla því að móður var nýverið meinað að gefa barni sínu brjóst inni á staðnum, segir á Facebook-síðu hópsins.

Skiptar skoðanir eru um uppátækið, þ.e. að efna til hópbrjóstagjafar á staðnum, ef marka má þær athugasemdir sem eru við viðburðinn á Facebook-síðunni. Þar kemur m.a. fram að mörgum þykir sjálfsagt að mæður geti gefið börnum sínum brjóst á veitingastöðum en aðrir segjast á öðru máli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert