Er kominn af gjörgæsludeild

mbl.is/Hjörtur

Maðurinn sem slasaðist alvarlega eftir að á hann var ráðist  í samkvæmi við Laugaveg aðfaranótt mánudagsins hefur nú verið fluttur af gjörgæsludeild og á almenna deild á Landspítalanum.

Að sögn læknis á sjúkrahúsinu var maðurinn útskrifaður af gjörgæsludeild í morgun, en hann gekkst undir aðgerð á Landspítalanum í fyrradag.

Honum hafði verið vísað úr samkvæminu eftir deilur við veislugesti og fannst síðan alblóðugur og meðvitundarlaus fyrir framan húsið.

Einn maður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag, en tveir aðrir tengjast málinu á þann hátt að þeir fóru með árásarmanninum út á eftir manninum sem ráðist var á. Ekki þótti þó ástæða til að krefjast gæsluvarðhalds yfir þeim.

Lögregla telur málið að mestu leyti upplýst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert