Vopnað rán var framið í verslun 10/11 á Kaupangi á Akureyri í nótt. Maður kom inn í verslunina, ógnaði starfsmanni með hnífi og komst undan með eitthvað af peningum. Hans er nú leitað.
Lögreglan á Akureyri fékk tilkynningu um ránið um kl. 2.30 í nótt. Var þjófurinn á bak og burt er lögreglan kom á vettvang. Lögregla telur að starfsmaðurinn hafi verið einn í versluninni er ránið var framið en verslun 10/11 er opin allan sólarhringinn.
Rannsókn málsins verður fram haldið í dag.