Ákærður fyrir morðið í Skúlaskeiði

Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur ungum manni sem banaði fyrrverandi unnustu sinni á heimili sínu í Skúlaskeiði í Hafnarfirði í febrúar sl.

Hlífar Vatnar Stefánsson, sem er 23 ára, kom á lögreglustöð í byrjun febrúar og greindi frá atviki sem átt hafði sér stað á heimili hans í Hafnarfirði. Framburður hans var um margt óljós en strax var farið heim til hans. Þar fannst kona á fertugsaldri og var hún látin þegar að var komið. Sjáanlegir áverkar voru á konunni og höfðu þeir verið veittir með eggvopni.

Hlífari Vatnari, sem hafði áður komið við sögu lögreglunnar, var gert að sæta geðrannsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert