Þekktir ofbeldismenn grunaðir um manndráp

mbl.is/Ómar

Tveir fangar á fertugsaldri hafa verið færðir af almennu rými í einangrunarvist í fangelsinu að Litla-Hrauni, en mennirnir eru grunaðir um að hafa veitt öðrum refsifanga áverka sem leiddu hann til dauða sl. fimmtudag. 

Samkvæmt heimildum mbl.is eru mennirnir sem um ræðir þeir Annþór Karlsson og Börkur Birgisson sem eru að sitja af sér eldri dóma en þeir hafa verið ákærðir fyrir stórfelldar líkamsárásir og ólögmæta nauðung.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi að bráðabirgðaniðurstöður krufningar bendi til þess að maðurinn, sem var 49 ára, hafi látist af völdum innvortis blæðinga.  

„Rannsókn málsins er unnin af Lögreglunni á Selfossi, tæknideild Lögreglu höfuðborgarsvæðisins og af réttarmeinafræðingi. Hún á byrjunarstigi og ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um hana eða málsatvik að svo stöddu,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert