Aðgerðum á slysstað í Dyrhólaey er að ljúka. Upplýsingar af slysstað hafa verið á reiki en komið hefur í ljós að tveir erlendir ferðamenn féllu þegar brún á Lágey Dyrhólaeyjar gaf sig. Við það varð til skriða sem tók ferðafólkið með sér niður í fjöruna fyrir neðan.
Björgunarsveitafólk á staðnum áætlar að fallið hafi verið um 40 metrar. Skriðan sem fór af stað er um 100 metra breið. Björgunarlið komst að fólkinu á landi og reyndist því ekki þörf á að síga til þess eins og fyrst var talið.
Ekki er vitað um meiðsli fólksins en verið er að setja það um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar sem mun fljúga með það á sjúkrahús í Reykjavík.