„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu,“ segir Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi á facebooksíðu sinni í kvöld í tilefni af nýjustu skoðanakönnunum á fylgi forsetaframbjóðenda.

Þrjár kannanir voru birtar í gær en samkvæmt tveimur þeirra, sem gerðar voru af Fréttablaðinu og Capacent, er Ólafur Ragnar með mest fylgi og umtalsvert forskot á Þóru sem kemur næst að fylgi. Sú þriðja sem MMR gerði sýndi þau Ólaf hins vegar með nákvæmlega jafnmikið fylgi.

Þá tilkynnir hún af sama tilefni að kosningamiðstöð framboðs hennar verði formlega opnuð næstkomandi mánudag, annan í hvítasunnu, í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert