Mikil gleði í Grindavík

Viðar Geirsson frá Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur, Bjarnfríður Jónsdóttir, Pétur …
Viðar Geirsson frá Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur, Bjarnfríður Jónsdóttir, Pétur Vilbergsson, Elín Þorsteinsdóttir, Sverrir Vilbergsson, Bjarný Sigmarsdóttir, Sigmar Björnsson og Ólafur Jón Arnbjörsson skólastjóri Fisktækniskóla Suðurnesja í Grindavík. Grindavíkurbær

Sjómannadagurinn var haldinn hátíðarlegur í Grindavík á hátíðarhöldum Sjóarans síkáta og var gríðarleg þátttaka í blíðskaparveðri. Að vanda voru sjómenn heiðraðir fyrir störf sín af Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur. Að þessu sinni voru heiðraðir þeir Pétur Vilbergsson, Sverrir Vilbergsson og Sigmar Björnsson.

Björgunarsveitin Þorbjörn fékk í tilefni dagsins glæsilega gjöf frá Sjómanna- og vélstjórafélaginu, Þorbirni hf., Vísi hf., Einhamri ehf. og Stakkavík ehf. Um var að ræða nýjan björgunarbát sem hlaðinn er öllum nýjustu tækjum og tólum til björgunarstarfa.

Björgunarbáturinn hefur fengið nafnið Árni í Tungu og kemur í stað annars báts með sama nafni sem verður seldur. Séra Elínborg Gísladóttir sóknarprestur blessaði bátinn.

Séra Elínborg Gísladóttir blessar nýjan björgunarbát Björgunarfélagsins Þorbjarnar í Grindavík.
Séra Elínborg Gísladóttir blessar nýjan björgunarbát Björgunarfélagsins Þorbjarnar í Grindavík. Grindavíkurbær
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert