Fræðsluráð Hafnarfjarðar samþykkti í morgun viðmiðunarreglur um samskipti leik- og grunnskóla Hafnarfjarðar við trúar- og lífsskoðunarfélög. Reglurnar eru nær orðrétt þær sömu og samþykktar voru í Reykjavík í fyrrahaust.
Með samþykktinni er ljóst að trúar- og lífsskoðunarfélög mega ekki stunda starfsemi sína innan veggja leik- og grunnskóla bæjarins á skólatíma. „Þetta á við allar heimsóknir í lífsskoðunar- og trúarlegum tilgangi og dreifingu á boðandi efni. Með boðandi efni er átt við hluti sem gefnir eru eða notaðir sem hluti af trúboði, það er tákngripir, fjölfölduð trúar- og lífsskoðunarrit, bækur, hljóðrit, prentmyndir og kvikmyndir. Ekki er átt við efni sem tengist fræðslu er stuðlar að menningarlæsi barna,“ segir í reglunum.
Í fljótu bragði virðast reglurnar samhljóma þeim sem samþykktar voru í Reykjavík fyrir utan eitt ákvæði. Í reglum Reykjavíkur segir: „Þess verði gætt við allar heimsóknir til og frá grunnskóla vegna fræðslu um trú og lífsskoðanir að nemendur fylgist með en séu ekki þátttakendur í helgisiðum og athöfnum, og að þær séu ekki vettvangur fyrir innrætingu eða dreifingu á boðandi efni.“
Fræðsluráð Hafnarfjarðar hefur ekki þótt ástæða til að setja reglu um þetta atriði, og raunar var þetta tekið úr drögum að reglum sem til umræðu voru.