Meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar í Reykjavík ætlar að ráða sorplöggur til að athuga hverju borgarbúar henda í ruslatunnur. Þetta segir Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks. Umhverfis- og samgönguráð hafnaði tillögu hans um söfnun endurvinnsluefna við heimili.
Gísli Marteinn skrifar pistil á vefsvæði sitt þar sem hann segist, ásamt Áslaugu Friðriksdóttur, hafa lagt fram eftirfarandi tillögu á fundi umhverfis- og samgönguráðs í dag: „Lagt er til að Reykjavík hefji eins fljótt og auðið er söfnun endurvinnsluefna við heimili, þar á meðal plasti. Tilboða verði leitað í þessa þjónustu, og söfnun geti hafist á haustmánuðum.“
Hann skýrir það út að í tillögunni felist að heimili í Reykjavík komist jafnfætis fjölda heimila á landsbyggðinni sem flokka heimilisúrgang og koma honum þannig í endurvinnslu. Gísli segir að til standi að breyta endurvinnslu í Reykjavík, og því hefði verið kjörið að bjóða heimilunum í borginni að flokka allt sorp, bæði pappír og plast, og selja svo efnið sem dýrmætt hráefni.
„En meirihlutinn felldi tillögu okkar Áslaugar um aukna endurvinnslu og ætlar að halda áfram að urða plast uppi í Álfsnesi. Til að tryggja að enginn hendi pappír í svörtu tunnuna, ætlar meirihlutinn hinsvegar að ráða nýja borgarstarfsmenn, sérstakar sorplöggur sem munu athuga hverju við hendum í tunnurnar!“
Í kjölfar þess að tillagan var felld létu Gísli og Áslaug bóka, að óskiljanlegt sé af hverju Samfylkingin og Besti flokkurinn þori ekki að taka skref inn í framtíðina með söfnun á plasti, rétt eins og öðrum endurvinnsluefnum. „Ekkert er því til fyrirstöðu að hefja slíka söfnun þegar í haust, nema metnaðarleysi meirihlutans. Afstaða þeirra er því bæði sorgleg og skaðleg fyrir umhverfið enda ljóst að plast verður áfram grafið í jörð í Álfsnesi, í stað þess að selja það til endurvinnslu.“